ÞAR SEM HUGMYNDIR TAKA FORM
Studio Rún er hönnunar- og arkitektúrstofa sem leggur áherslu á vandaða, heildstæða hönnun þar sem samspil manns og umhverfis er í forgrunni.
Við nálgumst hvert verkefni með opnum huga og skýrri sýn – að skapa byggingar sem endurspegla þarfir notenda, hafa framtíðarsýn, virða staðaranda og lifa í sátt við umhverfi sitt.
Við sérhæfum okkur í arkitektahönnun og ráðgjöf fyrir nýbyggingar, endurgerðir eldra húsnæðis og viðbyggingar. Við tökum að okkur hönnun og þróun íbúðarhúsnæðis af öllum stærðum og gerðum, þar á meðal fjölbýlishúsa, raðhúsa, parhúsa, einbýlishúsa og sumarhúsa. Einnig tökum við að okkur hönnun atvinnu- og skrifstofuhúsnæðis.
Við sjáum um umsóknir byggingarleyfa, aðaluppdrætti og séruppdrætti arkitekta. Við bjóðum einnig upp á innanhús- og lóðahönnun.
Markmið okkar er að byggja upp farsælt samstarf við viðskiptavini okkar með fagmennsku og persónulegri ráðgjöf að leiðarljósi.
Vilt þú fá frítt verðmat í verkefnið þitt? Hafðu samband og við svörum þér við fyrsta tækifæri.
