STUDIO RÚN

Studio Rún er hönnunar- og arkitektúrstofa sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum á sviði byggingarlistar. Við trúum á hönnun sem er einföld, hlý og í sátt við umhverfi sitt — hönnun sem mótar daglegt líf á eðlilegan og sjálfsagðan hátt.

Áhersla er lögð á að skapa rými þar sem fagurfræði, notagildi og sjálfbærni fléttast saman í heildstæða og rólega umgjörð um hversdagsleikann. Með vönduðu efnisvali, skýrri sýn og virðingu fyrir staðarandanum hönnum við rými sem endast — bæði í formi og tilfinningu.

Hvert verkefni er unnið af nærgætni og í opnu samtali, þar sem óskir viðskiptavinarins og einkenni staðarins leiða hönnunarferlið. Markmið okkar er að skapa tímalausan og mannlegan arkitektúr — rými sem bjóða upp á ró, hlýju og jafnvægi.

Svört hvít arkitekta skissa af raðhúsi. Skissað með svörtum túss. Arkitektahönnun og innanhúsönnun.

Studio Rún er rekin af Sigrúnu Guðnýju Halldórsdóttur, arkitekt.

Sigrún hefur víðtæka reynslu af hönnun og þróun fjölbreyttra verkefna, þar á meðal íbúðar- og skrifstofuhúsnæðis af ýmsum stærðum og gerðum, sem og verslana, hótela, skóla, leikskóla og hjúkrunarheimila.

Sigrún útskrifaðist sem arkitekt árið 2011 frá arkitektúrdeild Arkitektur og Design við Aalborg University í Danmörku. Að námi loknu starfaði hún hjá Domus Arkitekter og síðar KHS Arkitekter í Kaupmannahöfn. Árið 2015 flutti hún aftur til Íslands og starfaði þá hjá THG arkitektum og síðar Arkís arkitektum.

Frá byrjun árs 2026 hefur Sigrún rekið eigin arkitektastofu, Studio Rún, þar sem áhersla er lögð á vandaða, tímalausa og staðbundna hönnun.